Bloggfærslur mánaðarins, desember 2011
Miðvikudagur, 28. desember 2011
Mjög ánægjulegar tölur
Makríllinn er að stimpla sig inn sem einn mikilvægasti nytjastofn okkar Íslendinga.
Það er örugglega ekkert nýtt að þessi tegund sé í íslenskri lögsögu. Hún hefur komið og farið með hitasveiflum í hafinu og breytingum í stofnstærð makrílsins. Við verðum að athuga að í raun höfum við afskaplega stutta reynslu af sveiflum og breytingum í fiskgengd á Íslandsmiðum. Þekking okkar er mjög takmörkuð - tímaseríur stuttar og rannsóknir ná í raun til mjög skamms tíma.
Það er gaman að makríllinn skuli aftur kominn til Íslands og vonandi verður hann hér sem lengst í þetta sinn. Við erum augljóslega að sigla inn í hlýskeið á norðurhveli jarðar.
Fyrstu vertíðarnar eftir að makríllinn fór aftur að veiðast hér þá var nýting hans ekki til fyrirmyndar, - reyndar til háborinnar skammar. Makríll er matfiskur og mikið lostæti sem slíkur. Að veiða hann til bræðslu er hneyksli sem á hvergi að þekkjast. Menn geta alveg eins stundað bræðsluveiðar á þorsk og ýsu. Það er ánægjulegt að okkur skuli hafa tekist að söðla um í þessum efnum þar sem sjávarútvegsfyrirtækin hafa fjárfest í búnaði til frystingar og fullvinnslu um leið og menn hafa fundið markaði fyrir afurðirnar.
Þetta er nú allt að skila sér í mikilli vinnu og verðmætum - sannkallaðri gósentíð fyrir sjómenn, landverkafólk og sjávarbyggðir víðs vegar með ströndum landsins.
Nú er mikilvægt að menn semji ekki af sér í einhverju bráðræði eða hræðslukasti við andstæðinga okkar.
Meira hef ég ekki að segja, nema ég bendi bara á þessa færslu mína hér frá því fyrr í mánuðinum.
|
25 milljarðar vegna makríls |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Föstudagur, 23. desember 2011
Þá er bara um eitt að ræða....
|
Svikalogn í fyrramálið |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 23. desember 2011
Einstakar bardagamyndir úr Íshafinu
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 22. desember 2011
Fjórar stjörnur af fimm
Fyrsti dómur um bók mína "Dauðinn í Dumbshafi - Íshafsskipalestirnar frá Hvalfirði og sjóhernaður í Norður-Íshafi 1940-1943" birtist í Morgunblaðinu í morgun.
Þar segir Sigurður Bogi Sævarsson meðal annars;
"Magnús Þór Hafsteinsson hefur nú skráð þessa merku sögu sem var nauðsynjaverk. Enn koma fram nýjar heimildir um gang síðari heimsstyrjaldar. Púslum er raðað saman í myndina í bók um mestu hernaðaraðgerðir Íslandssögunnar. Til þess að gera hafa íslenskar bækur um síðari heimsstyrjöldina á Íslandi verið hver annarri líkar, mest verið fjallað um sambúð herliðs og þjóðar á nyrsta hjara og umskiptin miklu sem stríðinu fylgdu. Þetta rit er hins vegar svo miklu meira og síst ofmælt að tala um afreksverk Magnúsar Þórs - bók sem á eirindi miklu víðar en bara hérlendis."
Ég þakka að sjálfsögu fyrir þessi góðu orð. Sigurður Bogi finnur kannski helst að bókinni að hún hefði mátt vera styttri. Hann skrifar; "Efnið hefði þó ef til vill mátt vera samanþjappaðra og bókin einhverjum blaðsíðum færri".
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 21. desember 2011
Íshafsskipalestirnar: Tími á nýja nálgun
Í inngangi bókar minnar Dauðinn í Dumbshafi (bls. 12), skrfa ég eftirfarandi:
"Skipalestirnar, sem sigldu milil Hvalfjarðar og Norðvestur-Rússlands, hafa af einhverjum orsökum aldrei fengið þann sess í Íslandssögunni sem þær eiga svo fyllilega skilið. Kannski er orsökin margþætt. Þessar siglingar voru mikið leyndarmál á sínum tíma. Stöng öryggisgæsla var í tengslum við þær. Sjómenn fengu ekki að fara í land af ótta viðað gáleysislegt tal þeirra næði eyrum einhverra sem gætu verið vinveittir Þjóðverjum. Sömuleiðis var Hvalfjarðar vandlega gætt. Ljósmyndatökur voru alfarið bannaðar. Bandamenn óttuðust alltaf að njósnarar væru á Íslandi. Íslenskir fjölmiðlar virðast hafa verið stranglega ritskoðaðir. Engar fregnir virðast hafa verið fluttar hér á landi af siglingum þessara skipalesta eða afdrifum þeirra, jafnvel þótt Þjóðverjar til að mynda gerðu mikið úr því greina frá því þegar þeir unnu sigra sína gegn þeim.
Nokkrar blaðagreinar hafa birst í íslenskum tímaritum og dagblöðum en þær eru í raun ótrúlega fáar og hafa birst á margra áratuga tímabili. Að sama skapi er ekki mikið um heimildir í bókum um sögu hernámsins sem hafa komið út hér á landi þótt aðeins hafi ræst úr á seinni árum. Þögnin um Íshafsskipalestirnar kann að stafa af því að fátt er um samtímaheimildir á íslensku þar sem fjölmiðlarnir voru ritskoðaðir. Auk þess var framkvæmd siglinganna alfarið á ábyrgð Breta og Bandaríkjamanna en íslensk stjórnvöld komu ekki nærri. Síðan má velta fyrir sér hvort gamaldags kaldastríðshugsunarháttur hafi ráðið ríkjum. Að það hafi hreinlega ekki þótt rétt að hampa því um of að Ísland gegndi lykilhlutverki sem bækistöð við að koma aðstoð frá Bretum og Bandaríkjamönnum til herafla Sovétríkjanna þegar útlitið var hvað tvísýnast á árunum 1941 og 1942."
Það er löngu kominn tími til að breyta þessu, og finna nýja nálgun á hlutverk Íslands í seinni heimsstyrjöldinni. Ég fer aðeins yfir mikilvægi þessara siglinga hér í þessu myndbandi:
Það
Bækur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þriðjudagur, 20. desember 2011
Fáránleg umræða
Þessi veiðigjaldsumræða er öll ein pípandi della og það á ekki hlusta á þetta.
Ég hef alltaf verið á móti veiðigjaldi.
Það er algerlega galið að búa til sértæka skatta á atvinnuvegina, hvaða nafni sem þeir nefnast. Það á að skapa þessum atvinnuvegum skilyrði til að þeir dafni svo þeir geti greitt starfsfólki sínu góð laun, keypt þjónustu og fjárfest í tækjum og búnaði. Þannig skapa þeir ruðningsáhrif sem koma öllu þjóðfélaginu til góða. Ríki og sveitarfélög ná sínum bita af kökunni fyrir rest og þarf ekkert veiðigjald til.
Með því að smella hér má lesa grein sem ég skrifaði sumarið 2004 .
Afstaða mín til veiðiskattsins hefur ekkert breyst síðan þá.
Hættið þessu bulli.
|
Útgerðir í Eyjum greiða 1.245 milljónir |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Mánudagur, 19. desember 2011
Hárrétt hjá forsetanum
Að sjálfsögðu er það eðlilegur réttur okkar Íslendinga að stunda hvalveiðar, og það gerum við að því tilskildu að veiðarnar fari fram með forsvaranlegum hætti og séu sjálfbærar, bæði líffræðilega og efnahagslega.
Við eigum ekki að gefa neinn afslátt á þessum rétti okkar að uppfylltum þessum skilyrðum.
Hvalir eru náttúruauðlind, spendýr sem hafa verið nýtt frá örófi alda af mannskepnunni til matar og annarra nytja.
Ég vann í hvalstöðinni í Hvalfirði tvær vertíðar sumrin 2009 og 2010 (sjá myndir). Þar kynntist ég hvalveiðunum mjög vel af eigin raun.
Þessar veiðar eru græn stóriðja. Mengun er í algeru lágmarki sem og útblástur gróðurhúsalofttegunda. Þjóðin þarf ekki að kosta miklu til að stunda þær, það þarf hvorki að virkja, leggja vegi né spilla náttúrunni óafturkræft og varanlega með neinum hætti til að stunda þennan rekstur. Þessi starfsemi skapar mörg störf sem eru vel launuð. Við eigum öll að sameinast um að styðja við hvalveiðarnar með ráðum og dáð.
Ég minnist dvalar minnar í Hvalfirði með gleði og stolti.
Ef ég hefði ekki farið á vertíðar þar þá er næsta óvíst að þessi bók sem ég nefni hér fyrir neðan hefði orðið til, og þessi mikilvæga saga þar með sögð. Myndbandið hér fyrir neðan var tekið upp í gamla herbraggahverfi Hvals hf. í Hvalfirði nú um helgina. Gömlu myndirnar sem sjást eru einstakar og sýna m. a. herskip á þessum fallega firði fyrir 70 árum:
|
Hvalveiðar eru réttur Íslendinga |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 16. desember 2011
Prósentur en ekki fólk
Það er helst að skilja á forsætisráðherra að þessi fólksflótti af landinu snúist hvorki um fólk né einstaklinga, heldur séu þetta aðeins prósentur.
Mér finnst þessi mynd segja mikið:
Myndin sýnir brottflutta umfram aðflutta síðan á 19.öld. Hún er á vef Gagnauga og það má sjá hana nánar með því að smella hér.
Eitt vantar inn í þessar tölur og það eru allir Íslendingarnir sem starfa nú erlendis en eru enn með lögheimili hér á landi - hversu lengi sem það mun nú vara....
Það er fjölmargt fólk í þeim hópi.
|
Ekki fleiri brottfluttir í 100 ár |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þriðjudagur, 13. desember 2011
Íslendingaflóttinn frá Íslandi
Þessi brottflutningur er grafalvarlegt mál og stjórnmálamenn sem hafa brugðist og sitja nú í afneitun ættu að varast að gera lítið úr því.
Fólkið sem er að fara er á mjög góðum aldri, vinnufúst, vel gefið, með dýrmæta reynslu og menntun. Mjög margir fara vegna þess að lífið er þeim nánast óbærilegt hér á landi, þau sjá hér enga framtíð né tækifæri og þau geta ekki hugsað sér líf í atvinnuleysi og basli. Þá er betra að halda á brott og byrja upp á nýtt.
Ýmsir þættir gera það að verkum að það er engin ástæða til að ætla að nema brot af því fólki sem er nú farið, eða á förum, snúi nokkru sinni aftur til varanlegrar búsetu á Íslandi í fyrirsjáanlegri framtíð.
Það má benda á að bylting hefur orðið í ferðamöguleikum á undanförnum árum. Tilkoma lággjaldaflugfélaga gerir það að verkum að ferðir milli landa eru miklu ódýrari nú en fyrir nokkrum árum. Sem dæmi má nefna Noreg, en norska lággjaldaflugfélagið Norwegian ætlar að byrja að fljúga hingað á næsta ári.
Annað sem ég vil nefna er fjarskiptatæknin. Tölvurnar og internetið hafa valdið algerri byltingu. Nú er hægt að vera í góðu sambandi við fólk heima á Íslandi og fylgjast með allri umræðu og fjölmiðlun með aðstoð tölvutækni og gerfihnatta.
Ég bjó 13 ár í Noregi, á árunum 1986-2000. Á þeim tíma var mjög dýrt að fljúga og internetið ekki til á fyrri hluta tímabilsins, og að slíta barnskónum á seinni hlutanum. Það liðu vikur og mánuðir án þess að maður heyrði nokkrar fréttir frá Íslandi. Samskipti voru gegnum sendibréf eða stutt símtöl. Ég ætla ekki að bera þetta saman við aðstæður nú.
Þegar allt er dregið saman þá þarf ekki að koma á óvart þó fólk ílendist ef það flytur erlendis á annað borð í dag. Það hefur aldrei verið jafn auðvelt að búa á erlendri grund, og á sama tíma halda góðu sambandi við ættingja og vini á Íslandi og fylgjast vel með á líðandi stund.
Þetta eru bara staðreyndir sem stjórnvöld og ráðherrar ættu að gera sér grein fyrir, í staðinn fyrir að þumbast við með skæting og útúrsnúning í fjölmiðlum.
Ég skil mjög vel það fólk sem kýs að axla sín skinn og halda á brott, ekki síst til Noregs. Ég get alveg vitnað um að þar er mjög gott að búa.
Gangi þeim öllum sem best.
|
Næstmesta brottflutningsárið |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt 14.12.2011 kl. 18:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 12. desember 2011
Góðar viðtökur víðar: Uppseldur!
Eins og kemur fram í fréttinni þá byggja tölvuleikir eins og þessi á sögulegum forsendum þar sem vísað er til ófriðvænlegra aðstæðna einhvers staðar í heiminum.
Spennan selur, þannig er það bara.
Bók mín Dauðinn í Dumbshafi - Íshafsskipalestirnar frá Hvalfirði og sjóhernaður í Norður-Íshafi 1940-1943 er nú gersamlega uppseld hjá forlaginu Hólum eftir aðeins rétt rúma viku í sölu.
Prentsmiðjan Oddi vinnur nú á fullu við að ganga frá annari prentun og hún er væntanleg á lager Hóla um miðja vikuna.
Hvenær skyldi tölvuleikurinn koma?
Á morgun klukkan 14:30 mun ég lesa úr bókinni á Útvarpi Sögu.
Ég þakka góðar viðtökur.
Myndin sýnir breska flugmóðurskipið Victorious (á íslensku: Sigursæl) ásamt flotadeild í Hvalfirði. Fjöllin Þyrill og Hvalfell í baksýn.
|
Sögulegur tölvuleikur |
| Tenging við þessa frétt hefur verið rofin vegna kvartana. | |
Bækur | Breytt s.d. kl. 17:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Bloggvinir
-
Andrés.si
-
Nói Blomsterberg
-
Baldur Fjölnisson
-
Birna M
-
Einar Vignir Einarsson
-
Einar Örn Einarsson
-
Ellert Smári Kristbergsson
-
Friðrik Óttar Friðriksson
-
Fríða Björk Einarsdóttir
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Gils N. Eggerz
-
Grétar Ómarsson
-
Gunnar Freyr Hafsteinsson
-
Guðmundur Björn
-
Guðmundur Jónas Kristjánsson
-
Guðrún Magnea Helgadóttir
-
Guðrún María Óskarsdóttir.
-
Guðrún Ágústa Einarsdóttir
-
Guðrún Þóra Hjaltadóttir
-
Gísli Sigurðsson
-
Gústaf Níelsson
-
Halldór Jónsson
-
Hans Haraldsson
-
Heidi Strand
-
Heimssýn
-
Heiða Þórðar
-
Helgi Þór Gunnarsson
-
Högni Jóhann Sigurjónsson
-
Högni Páll Harðarson
-
Inga Lára Helgadóttir
-
Ingimundur Kjarval
-
Jakob Jörunds Jónsson
-
Jakob Þór Haraldsson
-
Jens Sigurjónsson
-
Jóhann H.
-
Jóhann Kristjánsson
-
Jóhannes Ragnarsson
-
Jón Snæbjörnsson
-
Jón Valur Jensson
-
Kristján H Theódórsson
-
Kristján Pétursson
-
Margrét St Hafsteinsdóttir
-
Mál 214
-
Pjetur Stefánsson
-
Pálmi Gunnarsson
-
Pétur Guðmundur Ingimarsson
-
Ragnar L Benediktsson
-
Rúnar Karvel Guðmundsson
-
S. Einar Sigurðsson
-
Salvör Kristjana Gissurardóttir
-
Sigríður Laufey Einarsdóttir
-
Sigrún Jóna
-
Sigurbrandur Jakobsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Sverrir Stormsker
-
Sævarinn
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Valdimar Samúelsson
-
Valgeir Bjarnason
-
Vilhjálmur C Bjarnason
-
Vilmundur Aðalsteinn Árnason
-
gudni.is
-
veffari
-
Ágúst Bjarni Garðarsson
-
Árni "Gamli" Einarsson
-
Ársæll Níelsson
-
Ævar Rafn Kjartansson
-
Ólafur Björn Ólafsson
-
Ólafur Hannesson
-
Ólafur Jónsson
-
Ólafur Ragnarsson
-
Ólafur fannberg
-
Óskar Helgi Helgason
-
Þóra Guðmundsdóttir
-
Þórbergur Torfason
-
Þórir Kjartansson
-
Arinbjörn Kúld
-
Baldur Hermannsson
-
Birgir R.
-
Bjarni Harðarson
-
Bjarni Kjartansson
-
Egill Jóhannsson
-
Eyþór Arnalds
-
Grétar Rögnvarsson
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Gunnar Rögnvaldsson
-
Gunnar Waage
-
Halldór Halldórsson
-
Hamarinn
-
Haraldur Bjarnason
-
Haraldur Haraldsson
-
Hildur Sif Thorarensen
-
Ingvi Rúnar Einarsson
-
Jóhann Elíasson
-
Jón Steinar Ragnarsson
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Kristinn Karl Brynjarsson
-
Kristin stjórnmálasamtök
-
Kristján Hilmarsson
-
Loftur Altice Þorsteinsson
-
Ómar Geirsson
-
Rafn Gíslason
-
Rafn Haraldur Sigurðsson
-
Rauða Ljónið
-
SeeingRed
-
Sigríður Sigurðardóttir
-
Sigurpáll Ingibergsson
-
Stjörnufræðivefurinn (www.stjornufraedi.is)
-
Sumarliði Einar Daðason
-
Vilborg Eggertsdóttir
-
Þórarinn Baldursson
Sögulegar ræður
Bækur
Dauðinn í Dumbshafi - Íshafsskipalestirnar frá Hvalfirði og sjóhernaður í Norður-Íshafi 1940-1943. Þessi bók mín kom út í nóvember 2011, hefur verið prentuð fjórum sinnum og fæst nú í kilju.
-

Meira
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.5.): 3
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 41
- Frá upphafi: 158953
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 34
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar







