Leita í fréttum mbl.is
Embla

Bloggfærslur mánaðarins, desember 2007

Hörð ESB andstaða í Noregi

Ég sé að norskir fjölmiðlar birta áhugaverða skoðanakönnun í dag. Allar götur síðan Norðmenn tóku það skynsamlega skref að hafna aðild að Evrópusambandinu í þjóðaratkvæðgagreiðslu fyrir réttum 13 árum þann 28. nóvember árið 1994, hafa Norðmenn verið duglegir að kanna hug þjóðarinnar til þess að Noregur yrði aðildarríki í sambandinu.

Norðmenn hafa það framyfir okkur hér á Íslandi að tvisvar hafa þeir gengið til samningaviðræðna við ESB um aðild, og í bæði skiptin hafa samningar verið lagðir fyrir norsku þjóðina til samþykkis í þjóðaratkvæðagreiðslu. Í bæði skiptin hefur samningum verið hafnað. Þetta hefur leitt til þess að norska þjóðin hefur haft tækifæri til að vega og meta kosti og galla aðildar út frá staðreyndum sem hafa legið á borðinu í formi samninganiðurstaðna.

Nýjasta könnunin sem birtist nú, sýnir að Norðmenn hafa ekki verið jafn neikvæðir í garð aðildar allar götur síðan árið 2001. Nú segja 53,4 prósent NEI, á meðan einungis 34,6 prósent treysta sér til að segja JÁ.

Þetta er mikill munur. Áhugavert er að í Verkamannaflokknum, sem er systurflokkur Samfylkingarinnar hér á landi, eru nú 52 prósent á móti ESB og aðeins 37 prósent segja já. Þetta eru nokkur tíðindi sem ættu að verða íslenskum í Samfylkingunni, - tilefni til gaumgæfilegrar umhugsunar og naflaskoðana.

Ég sé að andstaðan er trygg í Framfaraflokknum. Þar segja 55 prósent NEI, en 37 prósent svara með jái. Kristilegi þjóðarflokkurinn er harðasti andstöðuflokkurinn með 82 prósent gegn ESB og einungis tíu prósenta já. Kjell Magne Bondevik og félögum er ekki alls varnað. Yst til vinstri er andstaðan gegn ESB hörð og heilbrigð þó ekki sé hún jafn einörð og hjá þeim kristilegu.

Nokkur tíðindi eru svo að eini norski stjórnmálaflokkurinn þar sem meirihluti er fyrir ESB aðild er í gamla íhaldsflokknum Hægri, systurflokk Sjálfstæðisflokksins hér á landi. Hjá þeim eru það 56 prósent sem vilja ganga Brussel á hönd, en einungis 32 prósent eru á móti.  

Skyldi þetta fyrr en varir verða eins hjá Sjálfstæðisflokknum?


Höfundur

Magnús Þór Hafsteinsson
Magnús Þór Hafsteinsson

Bloggvinir

Sögulegar ræður

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband