Leita í fréttum mbl.is
Embla

Bók mín Dauðinn í Dumbshafi - Íshafsskipalestirnar

Bók mín Dauðinn í Dumbshafi - Íshafsskipalestirnar frá Hvalfirði og sjóhernaður í Norður-Íshafi 1940-1943 er nú komin út á vegum Bókaútgáfunnar Hóla.

Íshafsskipalestirnar sigldu milli Íslands og Norðvestur Rússlands í seinni heimssstyrjöld með hergögn frá Bretum og Bandaríkjamönnum til Rauða hers Sovétríkjanna sem barðist upp á líf og dauða gegn innrásarherjum Þjóðverja og bandamanna þeirra.

Ef smellt er hér, opnast vefgátt þar sem fletta má sýnishorni af bókinni (ýta á "click to read"):

book_1124239.jpg

Í gær fór ég til Bessastaða á fund Hr. Ólafs Ragnars Grímssonar forseta Íslands og afhenti honum fyrsta eintakið af bókinni.

Með í för voru Helgi Magnússon sagnfræðingur sem hafði umsjón með útgáfu verksins og Gunnar Kr. Sigurjónsson sem hannaði bókina og braut hana um.

Ólafur Ragnar Grímsson forseti er að að öðrum ólöstuðum sá íslenski ráðamaður sem hefur sýnt sögu Íshafsskipalestanna mestan áhuga.

Hann hefur heiðrað minningu þessarar sögu og fólksins sem tók þátt með ýmsum hætti á liðnum árum þó það hafi kannski ekki alltaf farið hátt hér á landi, enda saga Íshafsskipalestanna til þessa lítt kunn Íslendingum.

Forsetinn fagnaði bókinni og við áttum klukkutíma fund í bókastofu Bessastaða þar sem við ræddum sögu Íshafsskipalestanna, málefni Norðurslóða og hlutverk og stöðu Íslands í norðrinu, bæði í fortíð, nútíð og framtíð. Ólafur hefur næman skilning á því að hlutverk og þýðing Íshafsskipalestanna var miklu veigameira en hingað til hefur almennt verið talið, og þær höfðu mikil áhrif á gang mála á einum mestu örlagatímum í sögu mannskyns.

forseti.jpg

Forseti Íslands í bókastofunni á Bessastöðum með fyrsta eintakið af bókinni Dauðinn í Dumbshafi sem ég færði honum þegar bókin kom út 30. nóvember 2011(ljósmynd og myndband:Friðþjófur Helgason).

Fyrr í vikunni var svo fjallað um bókina í Kastljósi, þar sem Jóhannes Kristjánsson fréttamaður ræddi við mig um hana. Á undan voru sýndar kvikmyndir úr Hvalfirði og af skipalest á leið þaðan til Norðvestur Rússlands sem aldrei hafa sést opinberlega hér á landi fyrr. Einnig voru sýndar margar ljósmyndir.

Þessa umfjöllum Kastjóss má sjá með því að smella hérna.

Bókarverkefnið Dauðinn í Dumbshafi er með eigin síðu á Facebook. Sú síða er öllum opin sem á annað borð eru tengd á Fésbókina. Á henni má finna ýmsan fróðleik, ljósmyndir og annað, sem tengist sögu Íshafsskipalestanna og hernaðarins á heimskautsslóðum Atlantshafsins.

Það er von mín að þessi bók megi verða til þess að þessari miklu sögu verði gefinn nánari gaumur í framtíðinni. Gleðilegan fullveldisdag 1. desember!

 

Létt myndband sem sýnir þegar ég gekk á fund forseta Ísands og afhenti honum bókina:

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Helgi Helgason

Heill og sæll Magnús minn; æfinlega !

Um leið; og ég vil þakka þér fyrir fróðlega frásögu þína, í Kastljósi á dögunum, árna ég þér, og þinni fjölskyldu allra heilla, á komandi tíð, með þökkum fyrir þitt nýjasta framlag, til Íslands sögunnar, með þessu gagnmerka riti.

Með beztu kveðjum; úr Árnesþingi, utanverðu / 

Óskar Helgi Helgason, 1.12.2011 kl. 20:46

2 Smámynd: Magnús Þór Hafsteinsson

Bestu þakkir Óskar, ég met kveðju þína mikils. Góðar kveðjur sömuleiðis til þín og þinna héðan af Skipaskaga.

Magnús Þór Hafsteinsson, 1.12.2011 kl. 23:08

3 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Til hamingju með þetta Magnús, þetta er án ef mjög fróðlegt verk.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 2.12.2011 kl. 01:03

4 Smámynd: Ólafur Björn Ólafsson

Heill og sæll Magnús, og til hamingju með bókina. Hún er örugglega frábært framtak, þar sem saga íshafs skipalestanna hefur ekki verið allt of oft sögð.

Með kveðju

Kaldi

Ólafur Björn Ólafsson, 2.12.2011 kl. 10:02

5 Smámynd: Magnús Þór Hafsteinsson

Takk fyrir Guðrún og Ólafur. Bókin er nú komin í verslanir sem selja bækur um land allt, og verður á góðum tilboðum núna um helgina.

Magnús Þór Hafsteinsson, 2.12.2011 kl. 11:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Þór Hafsteinsson
Magnús Þór Hafsteinsson

Bloggvinir

Sögulegar ræður

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband