Leita í fréttum mbl.is
Embla

Listinn yfir bankabarónana

Nú í vor skoðaði ég aðeins yfirlit yfir styrki bankanna til stjórnmálamanna eins og þeirra er getið í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Ég flokkaði þessar tölur aðeins niður til að skýra þetta aðeins. Niðurstöðuna má nálgast á heimasíðu minni; magnusthor.is.  

Hér fyrir neðan er tilvitnun úr þessu þar sem ég fjalla um þau 17 sem fengu hæsta styrki:

"Í þessum hópi eru núverandi og fyrrverandi ráðherrar, núverandi og fyrrverandi formenn annars stjórnarflokksins - Samfylkingar, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, núverandi formaður fjárlaganefndar (Samfylkingarmaður sem er einn þeirra sem eru með forræði á ICESAVE málum), og fleiri. Steinunn Valdís Samfylkingarkona er styrkjadrottningin, en þétt á hæla hennar kemur Þorgerður Katrín varaformaður Sjálfstæðisflokksins sem fékk 1,5 milljónir í hverjum bankanum fyrir sig.

Á þessum topplista eru átta frá Sjálfstæðisflokk, sjö Samfylkingu, og tveir frá Framsókn. Sum eins og Þorgerður Katrín, Guðlaugur Þór og Kristján Möller hafa náð til sín ótrúlegum fjárhæðum, jafnvel sem sitjandi þingmenn þar sem þau gátu fært ýmsan kostnað, svo sem ferðir og síma vegna stjórnmálavafsturs síns beint á þingið, á þeim tíma sem þau voru í prófkjörsbaráttu. Auk þess voru þau á þeim tíma þingmenn á launum, en keppinautar þeirra jafnvel ekki og urðu að heyja sína prófkjörabaráttu án tekna.

Með öðrum orðum; sumir frambjóðendurnir á þessum listum voru á rúmum starfskjörum frá Alþingi og höfuðborg, á sama tíma og þau þáðu háar fjárhæðir frá bönkunum í formi styrkja".

Skoðið listann með því að smella hér.


mbl.is Steinunn Valdís segir af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur Ingi Hrólfsson

Og meðaltalið á hvern þingmann er??

Telur fólk virkilega að allur þessi hópur hafi gengið erinda styrkveitenda??

Að einungis spillt fólk bjóði sig fram til starfa fyrir þjóðina???

Það væri fróðlegt að heyra frá fólki sem þekkir þessa einstaklinga.

Og ef það er bara spillt fólk sem gefur kost á hversvegna vorum við að kjósa það til trúnaðarstarfa??

Og - ef þessi sveit fólks sem við veljum til forystu er svo kolómöguleg - hvernig erum við hin??

Ólafur Ingi Hrólfsson, 27.5.2010 kl. 20:56

2 Smámynd: Jón Valur Jensson

Frábært framtak hjá þér, Magnús Þór.

Fer nú að skoða listann ...

Jón Valur Jensson, 28.5.2010 kl. 05:01

3 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Mjög athyglisvert Magnús Þór.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 2.6.2010 kl. 02:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Þór Hafsteinsson
Magnús Þór Hafsteinsson

Bloggvinir

Sögulegar ræður

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband