Leita í fréttum mbl.is
Embla

Hin goðsagnakennda 330. flugsveit

Það er vert að vekja athygli á því að það var þyrla frá hinni víðfrægu 330. sveit konunglega norska flughersins sem fann Eirík Inga Jóhannsson.

Þessi flugsveit hefur mikla sögulega tengingu við Ísland. Hún var nefnilega stofnuð hér á landi vorið 1941 og skipuð landflótta norskum flugliðum.

330. flugsveitin er í dag elsta starfandi flugsveit norska flughersins.

Starfsemi 330. flugsveitarinnar hefur oftast verið nátengd hafinu. Hér á landi fékk hún það hlutverk að sinna skipalestavernd, og leit að kafbátum og óvinaflugvélum. Megin bækistöðin var í Skerjafirði við Reykjavík, en einnig voru settar á fót bækistöðvar á Akureyri og á Reyðarfirði.

Flugsveitin notaði upphaflega Northrop N-3PB sjólflugvélar. Seinna var skipti hún svo yfir á öflugri Catalina flugbáta. Í árslok 1942 var hún flutt til Skotlands.

Saga 330. flugsveitarinnar er mjög merk og hún hefur bjargað mörgum mannslífum. Hér er mjög skemmtilegt myndband frá upphafsdögum hennar í Reykjavík þegar þeir voru enn á Northrop-unum:


mbl.is Vilja nýjar hitamyndavélar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 4. febrúar 2012

Höfundur

Magnús Þór Hafsteinsson
Magnús Þór Hafsteinsson

Bloggvinir

Sögulegar ræður

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband